Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
18:31 › 26. maí 2012
Mikil aurskriða fór að veginn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði í dag. Hermann Hermannsson slökkviliðsmaður á Ísafirði tók meðfylgjandi myndir af skriðunni sem hann segir hafa náð niður á veginn um Eyrarhlíð á fimmta tímanum í dag. Er von á því að meiri aur og drulla muni fara yfir veginn en starfsmenn Vegagerðarinnar á Ísafirði kanna nú aðstæður. Ljóst er að ræsa þarf fram skurði svo að vegurinn milli Ísafjarðar og Hnífsdals lokist ekki ef fleiri skriður falla. Lögreglan á Vestfjörðum fylgist með gangi mála.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi