Greta: Vorum beðin um að blanda ekki saman pólitík og keppni

„Mannréttindi varða okkur öll“

„Við höfum ekkert orðið vör við neitt svoleiðis enda hefur oft verið ítrekað við okkur náttúrulega að keppnin er ópólitískur vettvangur og við erum beðin um að blanda ekki pólitík og tónlist saman. Og það er bara það sem við höfum gert, við höfum í raun bara einbeitt okkur að því sem við erum fengin hingað út til að gera,“ segir Greta Salóme Stefánsdóttir í samtali við RÚV.

Mikil umræða hefur verið um ummæli Gretu um það að mannréttindi séu ekki hluti af Eurovison. „Það hefur oft verið tekið fram að þetta sé ekki pólitískur vettvangur og við erum auðvitað bara komin hingað til að taka þátt í lagakeppni og mannréttindabrot eru náttúrulega ekki hluti af þessari keppni,“ sagði Greta í viðtali við Stöð 2 í gærkvöldi.

Ummælin hafa vakið mikla athygli og eru ekki allir á eitt sáttir. Helgi Seljan sjónvarpsmaður í Kastljósi Ríkisútvarpsins, segir orð Gretu um að mannréttindi séu ekki hluti af keppninni vera firringu: „Þvílík firring. Vonandi skíttapar hún.“

Páll Óskar Hjálmtýsson sagðist vera ósammála Gretu og sagði mikilvægt að tjá sig um mannréttindabrot. „Mín persónulega skoðun er sú að við megum ekki liggja á skoðunum okkar um þessi kláru mannréttindabrot sem hafa verið framin. Þögn er sama og samþykki,“ segir hann.

Aðspurð segir Greta á vef RÚV það rangt að sænska söngkonan, Loreen, sé eini keppandinn í Bakú sem hafi áhyggjur af mannréttindabrotum.

„Ég held reyndar að það sé ekki alveg rétt að segja að hún hafi látið sig málið varða, því mannréttindi varða okkur öll og það er sama hvaða keppandi það er. Hinsvegar gerði hún það sem við vorum beðin um að gera ekki og það er einmitt að blanda saman pólitík og þessari tónlistarkeppni. Keppnin er auðvitað sameiningartákn fyrst og fremst og eins og ég segi, þetta er bara ópólitískur vettvangur. Við erum bara fengin hingað út til að flytja þetta lag eins vel og við getum og það er það sem við ætlum að skila af okkur. Og fókusinn er eingöngu á það.“

Tengdar fréttir

Páll Óskar ósammála Gretu Salóme

Greta Salóme gagnrýnd fyrir afstöðu til mannréttindabrota


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.