Ný skoðanakönnun MMR um fylgi forsetaframbjóðenda sýnir að Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir njóta nákvæmlega jafnmikils fylgis í embætti forseta Íslands í næstu kosningum.
Könnun MMR var gerð opinber síðdegis og sýnir talsvert frábrugðna niðurstöðu en könnun Fréttablaðsins sem greint var frá í morgun. Samkvæmt þeirri síðarnefndu hefur Ólafur Ragnar nokkuð afgerandi stuðning meðal þátttakenda eða 54 prósent meðan 35 prósent styðja Þóru Arnórsdóttur. Aðrir frambjóðendur eru þar langt á eftir.
Samkvæmt könnun MMR sem gerð var 20.- 24. maí hefur fylgi Þóru lítillega dalað frá fyrri könnun MMR þann 15. maí. Þá naut Þóra stuðnings 43,4 prósenta en Ólafur Ragnar Grímsson 41,3 prósenta þátttakenda. Nú er þau hnífjöfn og bæði með stuðning 41,2 prósenta svarenda.
Þá mælist Ari Trausti Guðmundsson með 9,7 prósenta stuðning meðan könnun Fréttablaðsins gefur honum aðeins rétt rúmlega fimm prósenta stuðning. Aðrir frambjóðendur njóta mun minni stuðnings.

Hemmi Gunn fallinn frá