Þorðu ekki með Börk í Héraðsdóm Suðurlands

Hafði í hótunum og sýndi ofbeldistilburði

Ekki var þorandi að flytja Börk Birgisson í Héraðsdóm Suðurlands þar sem kveða átti upp gæsluvarðhaldsúrskurð yfir honum klukkan ellefu í morgun. Það er Vísir.is sem greinir frá þessu en þar kemur fram að dómari hefði farið á Litla Hraun og kveðið úrskurðinn upp þar.

Voru Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 13. júní.

Vísir.is greinir frá því að lögreglumenn hefðu átt í vandræðum með Börk Birgisson í gær þegar Annþór og hann voru fluttir í Héraðsdóm Suðurlands þar sem farið var fram á gæsluvarðhald yfir þeim.

Annþór og Börkur eru grunaðir um að hafa orðið samfanga sínum að bana á Litla Hrauni síðastliðinn fimmtudag. Sá látni hét Sigurður Hólm Sigurðsson en hann er sagður hafa látist af völdum innvortis blæðinga. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV eru til upptökur af því er Annþór og Börkur fara inn í klefa Sigurðar en skömmu síðar kvartaði Sigurður undan andnauð og verkjum. Lést hann áður en sjúkralið komst á vettvang.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.