Grunur um falskar undirskriftir

Kannast ekki við að hafa veitt Ástþóri meðmæli sín

„Við höfum grun um það en ég vil helst ekki staðfesta mikið,“ segir Páll Hlöðvesson, formaður yfirkjörstjórnar Norðausturkjördæmis, en enginn af þeim tíu meðmælendum sem stjórnin ákvað að sannreyna af meðmælendalista Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda könnuðust við að hafa veitt Ástþóri meðmæli sín.

„Við gáfum honum frest í gær til að bæta við nöfnum sem vantaði upp á og hann er búinn að gera það. Svo var honum gefinn frestur fram á miðjan dag í dag til að bæta við nöfnum ef hann vildi,“ segir Páll.

„Við tókum bara smávægilegt úrtak. Það var sirka tugur sem við athuguðum og ekkert þeirra stóðst,“ segir Páll sem man ekki til þess að slíkt hafi gerst áður. Páll segir kjörstjórnina hafa kannað sirka eitt nafn af hverjum lista frá Ástþóri. „Við höfðum ekki ástæðu til að ætla hjá öðrum,“ segir Páll. Hann segir að svo virðist vera sem nöfnin hafi verið skrifuð með svipaðri rithönd. „Þau virtust vera skrifuð með mjög svipaðri hendi. Án þess að við séum einhverjir sérfræðingar í að meta það,“ segir Páll.

Hann segir Ástþór fá vottorð frá yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis. „En við tökum fram að við tökum ekki afstöðu til nafnanna, gefum bara fjöldann eins og okkur ber að gera,“ segir Páll en innanríkisráðuneytið mun taka afstöðu til nafnanna.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.