Lögreglumennirnir ráðnir á fölskum forsendum

Blekktu skiptastjóra þrotabús Milestone

Þær upplýsingar sem tveir lögreglumenn gáfu skiptastjóra þrotabús Milestone við ráðningu þeirra til ráðgjafar reyndust rangar. Skiptastjóri harmar málið og mun kanna réttarstöðu þrotabúsins gagnvart mönnunum.

Sendi Grímur Sigurðsson, skiptastjóri þrotabús Milestone frá sér tilkynningu í dag þar sem harmað er að þrotabúið hafi ráðið til starfa tvo rannsakendur sem grunur leikur á að hafi nýtt sér trúnaðarupplýsingar úr fyrra starfi fyrir embætti sérstaks saksóknara.

Hefur embætti sérstaks saksóknara kært mennina tvo fyrir að brjóta þagnarskyldu sem gerð er til allra starfsmanna þess embættis. Mennirnir störfuðu enn við rannsóknir mála hjá embættinu þegar þeir stofnuðu ráðgjafarfyrirtæki og buðust í kjölfarið til að starfa fyrir þrotabú Milestone.

Í tilkynningu skiptastjóra segir að í þrotabúi af þeirri stærðargráðu sem þrotabú Milestone sé óhjákvæmilegt að kaupa utanaðkomandi aðstoð og skiptastjóri taldi mikils virði að fá til þess tvo reynda rannsóknarlögreglumenn. Rannsókn þeirra hafi skilað þrotabúinu miklu magni af gögnum um rekstur Milestone.

„Nú virðist ljóst að samband starfsmannanna tveggja við yfirmenn sína hjá lögreglunni var ekki með þeim hætti sem lýst var fyrir skiptastjóra og hefur embætti sérstaks saksóknara kært athæfi þeirra til ríkissaksóknara. Skiptastjóri harmar þetta mjög og

hefur veitt embætti sérstaks saksóknara allar upplýsingar um störf félagsins og umræddra lögreglumanna fyrir þrotabúið. Skiptastjóri mun jafnframt kanna réttarstöðu búsins vegna þessa máls.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.