„En fyrir utan ósannindi og dylgjur hafa þeir hvorki gert tilraun til að upplýsa almenning og félagsmenn sína um skuldamál og fjárreiður samtakanna og fyrirtækja í eigu Bændasamtakanna,“ segir Þórólfur Matthíasson, hagfræðiprófessor, sem fær engin svör við fjölmörgum spurningum sínum um rekstur hinna ríkisstyrktu Bændasamtaka.
Prófessorinn sendi ýmsar áleitnar spurningar til Bændasamtakanna í opnu bréfi í Fréttablaðinu í byrjun mánaðarins eftir að hafa lesið óritskoðaða ársreikninga samtakanna árin 2008 til 2010. Í þeim reikningum kom meðal annars fram gríðarlegt tap tveggja einkahlutafélaga Bændasamtakanna á þessum tíma en bæði félögin standa að rekstri hótela og veitingastaða.
„Árið 2006 virðist staða þessa áhætturekstrar hafa verið góð, en það ár hafnaði Búnaðarþing að selja hluta rekstrarins þó í boði væru 4,3 milljarðar króna. En skjótt skipast veður í lofti því sex árum síðar var eiginfé Hótels Sögu ehf. neikvætt um 2,5 milljarða króna skv. ársreikningi! Félagið virðist ekki hafa getað staðið við skuldbindingar sínar á árinu 2010. Eigandinn, Bændasamtökin, tekur afleiðingu þessarar stöðu og færir verðmæti hlutafjáreignar sinnar niður í núll bæði í Hótel Sögu ehf. og Hótel Íslandi ehf. og afskrifar 950 milljón króna skuld Hótels Sögu við Bændasamtök Íslands.“
Þórólfur óskaði eftir svörum við 18 spurningum sínum varðandi rekstur samtakanna. Meðal annars hvað skýrði hið mikla tap í hótelrekstri Bændasamtakanna síðan 2006 og hvort rétt sé að ríkisstyrkt Bændasamtökin séu að standa í áhættusömum rekstri á borð við rekstur veitingahúsa og hótela.
Nú þremur vikur síðar hafa engin svör borist og segir prófessorinn þögn samtakanna afhjúpandi.
„Þögn forystumanna bænda og Bændablaðsins er afhjúpandi. Hún segir okkur að forystumennirnir og Bændablaðið telji hvorki félagsmenn sína né almenning (sem borgar drjúgan part af kostnaði við rekstur samtakanna) eigi kröfu á skýringum á milljarða halla á hótelrekstri samtakanna.“

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi