Kom alblóðug í Arion banka eftir árás hunds

Vegfarendur og starfsfólk hringdu á sjúkrabíl

Vegfarendum í Austurstræti var mjög brugðið þegar að kona kom alblóðug inn í Arion banka í Austurstræti. Reyndist hundur hafa leikið konuna svo grátt að hún var stórslösuð með bitsár á framhandlegg. Það blæddi talsvert og konan var í miklu uppnámi.

Hundurinn mun vera í eigu útigangsfólks, en ekki liggur fyrir hvernig eða hvers vegna hundurinn réðst á konuna. Er líklegt að árásin hafi átt sér stað á Austurvelli. Bæði vegfarendur og starfsfólk Arion banka hringdu á lögreglu og sjúkrabíl og komu báðir að vörmu spori. Einn vegfarandi sem hafði samband við DV óttaðist mjög um konuna og sagði það hafa verið mjög óhugnanlegt að sjá hvernig konan var leikinn eftir hundinn og sagði ljóst að árásin hefði verið mjög alvarleg.

Þær upplýsingar fengust hjá lögreglu að konan hefði verið færð á sjúkrahús en ekki er vitað nánar um ástand hennar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.