Skilaboðin til spænsku söngkonunnar Pastora Soler sem flytur framlag Spánar í Eurovision söngvakeppninni frá forsvarsmönnum spænsku ríkissjónvarpsstöðvarinnar TVE voru tiltölulega einföld; í guðanna bænum ekki vinna keppnina í Baku.
Ástæðan er sú að óvíst er hvort Spánn hafi nokkur efni á að halda Eurovision keppnina með góðu móti fari svo að Spánn sigri á laugardagskvöldið. Sjálf hefur söngkonan áhyggjur og vonar sjálf að Spánn fari ekki með sigurinn af hólmi enda sé efnahagur landsins ekki með þeim hætti að hægt sé að eyða milljörðum króna í söngvakeppni.
„Ég held að þetta sér ekki andartakið til að vinna keppnina hvorki fyrir Spán né spænskan almenning.“ lét hún eftir sér hafa í útvarpsviðtali fyrr í dag. „Ég held það yrði ómögulegt fyrir okkur að halda keppnina að ári því það yrði einfaldlega of dýrt.“

Hemmi Gunn fallinn frá