Ástþór: Reynt að spilla fyrir framboðinu

Sami aðili falsaði fjölmargar undirskriftir

Komið hefur í ljós að einn og sami aðilinn falsaði allar þær undirskriftir sem ekki reyndist fótur fyrir á meðmælalistum Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda.

Ástþór telur að um skipulega aðför sé að ræða að sér og sínu framboði til forseta en bendir á að ekki sé sannað að umræddar undirskriftir séu beinlínis falsaðar í samtali við Mbl.is. Mögulega hafi einhverjir skrifað undir meðmæli án þess að vilja kannast við það síðar.

Hann telur þó upp fleiri dæmi um að hugsanlega séu óprúttnir að reyna að spilla fyrir framboði sínu. Tekur hann dæmi um að hafa fengið á annað hundrað beiðnir um að koma og kynna sín mál í hinum ýmsu fyrirtækjum en þegar staðfesta átti heimsóknirnar hafi enginn kannast við neitt.

Hvað varði fölsuðu undirskriftirnar gerir Ástþór ráð fyrir að innanríkisráðuneytið kanni það mál. Hann sé þolandinn í málinu og það sé yfirvaldsins að rannsaka hver sé að baki og hvers vegna.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.