50 missa vinnuna hjá Landsbankanum

Loka allt að átta útibúum um land allt

50 starfsmenn Landsbanka Íslands koma til með að missa vinnuna á næstunni en tekin hefur verið ákvörðun um að loka átta útibúum bankans um land allt.

Áætlar bankinn að spara um 400 milljónir króna með þessum aðgerðum sem ná til útibúa á Austurlandi, Vestfjörðum, Snæfellsnesi auk sameiningar starfsstöðva á höfuðborgarsvæðinu

Heimildir DV herma að þetta sé aðeins fyrsti niðurskurður bankans af nokkrum á næstu misserum og því ljóst að enn fleiri starfsmönnum verður sagt upp áður en yfir lýkur. 29 starfsmenn hafa þegar fengið uppsagnarbréf auk þess sem 15 öðrum verið boðinn starfslokasamningur vegna aldurs. Aðrir sem nú hætti höfðu áður sagt upp störfum.

Talið er að stjórnendur bankans séu með þessu að undirbúa bankann undir skráningu á markað en að því hefur verið stefnt um tíma.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.