Afskrifa 650 milljónir hjá Eggerti

Landsbankinn óskaði eftir þroti hins eignalausa félags

Kröfuhafar eignarhaldsfélags í eigu Eggerts Magnússonar hafa afskrifað tæplega 650 milljónir króna skuldir hjá félaginu. Félagið heitir Kex ehf. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta í janúar og lauk skiptum á búi þess þann 4. maí síðastliðinn. Engar eignir fundust í búi félagsins upp í þessar kröfur sem námu samtals 647,7 milljónum króna. „Engar eignir fundust í búinu,“ segir í Lögbirtingablaðinu.

Eggert er fyrrverandi formaður Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) og fyrrverandi stjórnarformaður knattspyrnufélagsins West Ham. Hann var einnig forstjóri kexverksmiðjunnar Fróns á sínum tíma. Eggert var stjórnarformaður og einn af hluthöfum West Ham eftir að Björgólfur Guðmundsson, aðaleigandi Landsbankans, keypti félagið árið 2006.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.