Erfiðara að vera hrein mey en að æfa fyrir Ólympíuleikana

Lolo Jones segir stráka hafa reynt að sannfæra hana að kynlíf hjálpaði henni að hlaupa

Íþróttastjarnan Lolo Jones segir að það sé erfiðara að halda sig frá kynlífi en að æfa fyrir Ólympíuleika. Jones, sem er 29 ára gömul hrein mey, tók ákvörðun um það snemma á lífsleiðinni að stunda ekki kynlíf fyrr en eftir að hún gengur í hjónaband. Hún hefur undanfarin ár einbeitt sér að íþróttaframa sínum en hún hefur keppt á Óympíleikum í grindarhlaupi.

Jones talaði opinskátt um ákvörðunina að stunda ekki kynlíf fyrr en eftir að hún gengur í hjónaband í samtali við Real Sports á HBO-sjónvarpsstöðinni „Þetta hefur verið erfið vegferð,“ segir Jones. „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert á ævi minni; erfiðara en að æfa fyrir Ólympíuleikana.“ Hún segir líka að háskólanámið sitt hafi verið auðveldara en að standa við skírlífsheitið.

„Þetta hefur alveg freistað mín,“ segir Jones sem lítur á kynlíf sem gjöf sem hún vilji gefa eiginmanni sínu. „Strákar hafa sagt við mig „þú veist að ef þú stundar kynlíf þá hjálpar það þér við að hlaupa hraðar“.“


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.