„Mig langar miklu frekar að geta bara sofnað og dáið þannig heldur en að vera pínd til dauða. Það er það sem mig langar ekki. Mig langar ekki að lenda aftur í þessari ógeðslegu pyntingu, þau pyntuðu mig í lengri tíma,“ segir Berglind, fórnarlamb, tveggja líkamsárása, önnur þeirra tengist aðilum sem eru tengdir Hells Angels mótorhjólasamtökunum en sú seinni er óupplýst, segist oft hafa íhugað að vilja bara sofna svefninum langa.
Hún endurupplifir fyrri árásina oft. „Ég vakna oft upp á nóttunni við högg, eins og það sé verið verið að berja mig. Ég endurupplifi atburðina. Fyrstu mánuðina ældi ég blóði af stressi og vanlíðan. Ég gjörsamlega missti trúna á mannfólkið. Núna er ég þannig að mér finnst ég ekki hafa tilvistarrétt, mér finnst ég ekki eiga rétt á sama súrefni og aðrir, mér finnst ég taka pláss og mér finnst ég vera fyrir.“ Hún segist þó ekki ætla að gefast upp og ætlar ekki að láta gerendurna komast upp með glæpinn. „Fyrr skal ég dauð liggja en að láta þau komast upp með þetta,“ segir hún.
Fyrri árásin átti sér stað í Hafnarfirði þann 22. desember og sú síðari í Reykjavík þann 1.janúar síðastliðinn. Eins og DV hefur fjallað um þá sitja fjögur í gæsluvarðhaldi út af fyrri árásinni sem þótti sérstaklega hrottaleg. Ekki er vitað hver stóð að seinni árásinni. Berglind hefur verið í felum undanfarna mánuði og undir vernd lögreglunnar.
Nánar er rætt við Berglindi í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013