Tveir íslenskir læknar, Sigurður Ólafsson og Einar S. Björnsson, rannsaka tengsl lifrarskaða og notkunar á fæðubótarefninu Herbalife á Íslandi. Einar segir að þeir hafi fundið tíu tilfelli hjá Íslendingum þar sem talið er að lifrarskaða megi rekja til notkunar á fæðubótarefninu. Hann segir að lifrarskaðinn hafi gengið til baka hjá þessum tíu einstaklingum eftir að þeir hættu að nota Herbalife. Lifrarskaðinn birtist meðal annars í ógleði, slappleika og gulu.
Rannsókn Sigurðar og Einars er hluti af alþjóðlegri rannsókn á tengslum lifrarskaða og notkunar á Herbalife sem fram fer í sjö löndum um þessar mundir. Rannsóknin á skaðsemi Herbalife er hluti af stærri rannsókn þar sem Sigurður og Einar kanna orsakasamband lyfja við lifrarskaða. Einar segir að hér á landi séu fæðubótarefni í öðru sæti á eftir sýklalyfjum af þeim lyfjum sem líklegust eru til að valda lifrarskaða. „Þetta er bara eins og með önnur lyf að einstaka einstaklingur fær einhvers konar ofnæmi fyrir lyfinu sem aðrir fá ekki og þolir ekki lyf sem aðrir þola mjög vel. Ég held að það sé raunin með Herbalife: Það er mikill minnihluti sem lendir í einhverjum vanda út af þessu,“ segir Einar.
Persónuvernd veitti þeim Sigurði og Einari heimild til þess í apríl síðastliðinn að fá aðgang að sjúkraskrám þeirra einstaklinga sem til rannsóknar eru. Á heimasíðu Persónuverndar segir orðrétt um heimildina til rannsóknarinnar: „2012/283 - Sigurði Ólafssyni, lækni á LSH, og Einari S. Björnssyni, yfirlækni meltingarlækninga á LSH, var veitt leyfi til aðgangs að sjúkraskrám vegna rannsóknar sem ber yfirskriftina „Athugun á lifrarskaða af völdum Herbalife fæðubótarefna“.“
Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013