„Þó að þetta fólk sé í fangelsi þá er líf mitt eins og fangelsi,“ segir Berglind, fórnarlamb tveggja líkamsárása. Önnur þeirra átti sér stað örfáum dögum fyrir jól og tengist aðilum sem voru aðilar að Hells Angels mótorhjólasamtökunum en sú seinni er óupplýst. Berglind segir í DV í dag frá því hvernig líf hennar hefur breyst eftir árásirnar. Hún lifir í stöðugum ótta og hefur þurft að loka á allt samband við þá sem standa henni nærri.
Fyrri árásin átti sér stað í Hafnarfirði þann 22. desember og sú síðari í Reykjavík þann 1.janúar síðastliðinn. Eins og DV hefur fjallað um þá sitja fjögur í gæsluvarðhaldi út af fyrri árásinni sem þótti sérstaklega hrottaleg.
Berglind hefur verið í felum undanfarna mánuði og undir vernd lögreglunnar. Þrátt fyrir það hafa henni borist óbeinar hótanir og fyrir helgi var kveikt í bílnum hennar. Bíllinn stóð fyrir utan húsið þar sem var ráðist á hana í seinna skiptið. Hún segist viss um að þarna séu að verki þau sömu og stóðu að baki árásunum.
Ítarlegt viðtal við Berglindi er í DV í dag. Áskrifendur geta lesið greinina í heild með því að smella á Meira.


Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi