Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
15:30 › 21. maí 2012
Aron Pálmi Ágústsson játaði sök í Héraðsdómi Reykjavíkur en hann var ákærður fyrir fjársvik með því að hafa gist á hinum ýmsu hótelum í Reykjavík í júlí og ágúst 2010, án þess að greiða fyrir.
Aron var einnig ákærður fyrir vopnlagabrot en fallið var frá þeim ákærulið þar sem hnífurinn sem er af gerðinni Black operation, fannst í ferðatösku Arons Pálma og var því ekki á almannafæri.
Dómurinn dæmdi Aron Pálma í fjögurra mánaða fangelsi skilorðsbundið til tveggja ára. Aron var einnig gert að borga Keahótelum 130.000 í skaðabætur.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013