Bræðrunum Robert og Vincent Tchenguiz var hótað því að rannsókn á máli þeirra gæti tekið fimm til tíu ár ef þeir myndu ekki fallast á að greiða jafnvirði 10 milljarða íslenskra króna til góðgerðarmála. Í staðin fyrir greiðsluna hugðist efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, að hætta rannsókn á bræðrunum. Breska blaðið Telegraph greinir frá þessu.
Fyrir helgi greindi blaðið frá því að slitnaði hafi upp úr þessum viðræðum á milli efnahagsbrotadeildarinnar og Tchenguiz-bræðra. Ástæðan var sögð sú að ekki náðist samkomulag um hvort greiðslurnar ættu að vera gerðar opinberar eða ekki.
Þrátt fyrir að rannsókninni hafi ekki verið hætta hefur efnahagsbrotadeildin viðurkennt að mistök hafi verið gerð við hana. Þessu eru Tchenguiz-bræður sammála en þeir hafa jafnframt neitað að hafa gert nokkuð saknæmt. Þeir standa nú í málaferlum við efnahagsbrotadeildarinnar vegna rannsóknarinnar en þeir voru handteknir vegna hennar ásamt sjö öðrum, þar af tveimur í Reykjavík.
Sjá einnig:
Tchenguiz-bræðrum boðið að styrkja góðgerðarmál í stað rannsóknar

Eurovison 2013
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi