Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
22:38 › 20. maí 2012
Karlmaður sem féll þegar hann var að týna egg á Hornströndum fyrr í dag er kominn á gjörgæsludeild á Landspítalanum. Maðurinn var fluttur þangað með þyrlu Landhelgisgæslunnar nú undir kvöld en samkvæmt Vísi.is var maðurinn kominn á spítalann um klukkan átta. Samkvæmt Morgunblaðinu er maðurinn á leið í aðgerð og er hann með alvarleg beinbrot eftir fallið.
Maðurinn féll úr um 25 metra hæð yfir fjörunni og niður á syllu og slasaðist. Talið er að fallið sjálft hafi verið um tíu til tuttugu metrar. Rúmlega tuttugu einstaklingar tóku þátt í björgunaraðgerðunum. Þyrla Landhelgisgæslunnar, sérþjálfaðir fjallabjörgunarmenn, björgunarskip og hraðskreiðir bátar voru notaðir í aðgerðunum.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013