Ratko Mdladic, fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-Serba, var á miðvikudag dreginn fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag, þar sem hann svarar til saka fyrir stríðsglæpi sína. Meðal annars fyrir að hafa stýrt aftökum á 8 þúsund múslimum í bosníska bænum Srebrenica.
Komið að skuldadögum
Hinn sjötugi Mdladic er ákærður í ellefu ákæruliðum fyrir þjóðarmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyninu á borgarastyrjaldarárum fyrrverandi Júgóslavíu á árunum 1992-95. Um er að ræða versta mál sinnar tegundar síðan í síðari heimsstyrjöldinni. Nú er komið að skuldadögum.
Á mánudag lagði lögmaður Mdladic fram kröfu um að réttarhöldunum yrði frestað um hálft ár á þeim forsendum að saksóknari hafi flaskað á að leggja fram sönnunargögn í tæka tíð og þá sakaði hann sömuleiðis hollenskan dómara málsins um hlutdrægni vegna fyrri starfa.
Réttarhöldin héldu þó áfram á miðvikudag og meðal viðstaddra voru fjölskyldur og fórnarlambanna í Srebrenica. Hlé var hinsvegar gert á réttarhöldunum á fimmtudag „regluleysis“ af hálfu saksóknara. Ekki er ljóst hvenær réttarhöldin hefjast að nýju.
Fannst í geymsluskúr í Serbíu
„Fórnarlömb Ratko Mladic hafa beðið þess í nærri tvo áratugi að sjá hann sitja á sakamannabekk,“ sagði Param-Preet Singh, yfirráðgjafi hjá Human Rights Watch, fyrir réttarhöldin. „Þessi réttarhöld sýna að þeir sem sakaðir eru um grimmdaræði geta ekki bara látið réttlætisklukkuna renna sitt skeið.“ Mladic tókst að fara huldu höfði í nærri sextán ár þangað til yfirvöld handsömuðu hann loks í maí 2011, með því að lögreglusveit gerði áhlaup á lítið hús hans í norðurhluta Serbíu.
Þessi eftirlýstasti stríðsglæpamaður Evrópu fannst í garðinum með bakið upp að vegg í geymsluskúr. Hann var með tvær skammbyssur á sér en gafst þó upp án átaka og var framseldur til Hollands til að svara til saka.
Réttarhöldin yfir Mladic koma í kjölfar annars tímamótadóms sem féll á dögunum þar sem fyrrverandi forseti Líberíu, Charles Taylor, var fundinn sekur um aðild að stríðsglæpum í Síerra Leóne.
Fyrirlítur enn óvini sína
En frá fyrsta degi í varðhaldi hefur Mladic sýnt mótþróa og virðist síður en svo hafa snúið baki við þeirri fyrirlitningu sem hann bar fyrir óvinum sínum. Á fyrri stigum málsins fyrir dómi hefur hann beint ógnandi handabendingum að ekkjum fórnarlambanna í Srebrenica, þar sem hann dró fingur þvert yfir háls sér líkt og hann væri að skera á háls. Hann hefur einnig truflað dóminn með því að setja á sig hatt og neitað að tjá sig. Þá hefur hann óskað eftir að máli hans verði frestað sökum slæmrar heilsu. En öll þessi klækjabrögð hafa verið til einskis. Réttarhöldin eru hafin.
Dótturdauði gerði hann að skrímsli
Það er óhugnanlegt til þess að hugsa að ekki sé lengra síðan en í júlí 1995 sem hershöfðinginn fyrrverandi leiddi hersveit sína inn í bæinn Srebrenica. Á nokkrum dögum höfðu hermenn Mdladic kerfisbundið myrt átta þúsund múslimska menn og drengi. Í kjölfarið fékk hershöfðinginn viðurnefnið; „Slátrarinn frá Bosníu.“
Rúmlega ári fyrir þjóðarhreinsanirnar í Srebrenica, nánar tiltekið í mars 1994, átti sér stað atburður sem þeir sem þekktu Mladic persónulega segja að hafa gjörbreytt honum í „blóðþyrst skrímsli.“ Þá fannst Ana, 23 ára gömul dóttir hans, látin. Líklegast er talið að hún hafi svipt sig lífi með uppáhalds skammbyssu föður síns en Mladic hélt því fram að hún hefði verið drepin af óvinum hans. Hið virta tímarit Newsweek hafði eftir einum fyrrverandi yfirmanni í herliði hans: „Margir telja að hann hafi misst vitið. Líf Mladic skiptist í tvo hluta - fyrir og eftir andlát Önu. Hann náði sér aldrei. Hann var niðurbrotinn maður.“
Eftir að hann var Mladic var handtekinn fékk hann, í fylgd sérsveitarmanna, að heimsækja leiði dóttur sinnar í Belgrad, þann 1. júní 2011 í nokkrar mínútur.
Uppfært klukkan 23.16:
Röng mynd birtist með fréttinni þegar hún var fyrst birt.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi