Morðtilraun í Kópavogi

Hent fram af svölum- Lögreglan með mann í haldi

,,Hann lenti vel og er því ekki alvarlega slasaður,“ segir vakthafandi lögreglumaður sem kemur að rannsókn málsins.

Og bætir við:

,,Hann liggur á slysadeildinni sem stendur og er með fullri meðvitund.“

Manninum var hent fram af svölum á fjórðu hæð rétt fyrir klukkan tíu í morgun en hafði heppnina með sér þegar hann lenti á svölunum á hæðinni fyrir neðan. Lögreglan vildi ekki tjá sig frekar um málið en ljóst er að hún hefur karlmann í varðhaldi sem grunaður er um verknaðinn.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.