Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
20:46 › 20. maí 2012
Eigandi veitingastaðarins Kaffi Lára komst sjálfur út úr húsinu eftir að kviknaði þar í fyrr í kvöld. Hann sakaði ekki og þurfti ekki á aðstoð að halda við að koma sér út úr húsinu. Slökkvistarfi er lokið en slökkviliðið er þó enn á svæðinu. Að sögn lögreglunnar á staðnum er húsið mikið skemmt, ef ekki ónýtt.
Björgunarsveitir frá Seyðisfirði og Egilstöðum voru kallaðar á staðinn til að aðstoða slökkviliðið við störf sín og til að aðstoða lögregluna við að loka svæðinu. Mikill eldur var í húsinu um tíma en að sögn lögreglu virðist eldurinn hafa verið nokkuð staðbundinn. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins.

Stóra IKEA-málið
Mannránin í Cleveland
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013