Þrír áhugasamir kaupendur standa eftir í söluferlinu um flugfélagið Bláfugl samkvæmt heimildum DV. Bláfugl er í eigu Íslandsbanka að 2/3 hlutum en Glitnir á þriðjung í félaginu. Meira en 20 aðilar skoðuðu Bláfugl eftir að Miðengi, dótturfélag Íslandsbanka, auglýsti félagið til sölu fyrr á árinu. Þrír skiluðu svo inn skuldbindandi tilboðum sem eru til skoðunar. Endurskoðendaskrifstofan PwC annast söluferlið fyrir hönd Miðengis. Hvaða tilboð verður valið mun ráðast í næstu viku, samkvæmt heimildum DV.
Heimildirnar herma að nokkrir erlendir aðilar hafi skoðað fjárfestingu í Bláfugli. Jafnframt að enginn af þeim þremur áhugasömu aðilum sem nefndir eru séu þekktir íslenskir aðilar sem vinna á flugmarkaðnum á Íslandi, hvorki Pálmi Haraldsson né Skúli Mogensen, eigendur Iceland Express og WOW air. Orðrómur hefur verið um það að meðal annars þessir aðilar kynnu að hafa áhuga á Bláfugli sem hefur meðal annars yfir flugrekstrarleyfi á Íslandi að ráða – Pálmi hefur til að mynda ekki yfir slíku flugrekstrarleyfi að ráða. Bláfugl er einnig með flugrekstrarleyfi í Perú og Aserbaídsjan og kynnu einhverjir erlendir aðilar að hafa áhuga á þeim leyfum.
Nánar er fjallað um málið í helgarblaði DV. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild sinni með því að ýta á meira.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013