Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
12:34 › 19. maí 2012
„Bak við tjöldin eru hún bara amma okkar, svo einfalt er það,“ sagði Harry prins í viðtali við Katie Couric hjá ABC í vikunni aðspurður hvernig það væri að eiga sjálfa Bretlandsdrottningu sem ömmu. „Ég lærði það strax frá unga aldri að maður abbast ekki upp á ömmu,“ bætti Vilhjálmur prins við.
Brot úr viðtali bandarísku sjónvarpskonunnar við prinsana hefur verið birt á netinu en verður sýnt í lok mánaðarins. Í viðtalinu slá prinsarnir tveir á létta strengi með Couric. Harry sýnir henni leynihurð í Buckingham-höll og upplýsir að amma hans sé ekki búin að samþykkja vinabeiðni hans á Facebook.

Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013