Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og eiginkona hans hafa tekið meira en 1100 milljónir króna í arð úr Samherja frá árinu 2007 þegar útgerðin Sjólaskip var keypt á Kanaríeyjum og veiðar útgerðarfyrirtækisins hófust við vesturströnd Afríku. Sjólaaskip heitir í dag Katla Seafood en það eru tvö íslensk eignarhaldsfélög sem halda utan um eignarhlut Samherja í Kötlu Seafood. Fyrirtækin tvö eru Mercury Seafood og Polaris Seafood en samkvæmt ársreikningum þessara fyrirtækja, á árabilinu 2007 til 2010, nemur samanlagður hagnaður þeirra 139 milljónum dollara.
Þetta kemur fram í úttekt DV um hagnað Samherja á Afríkuveiðum en þar er greint frá því að arðgreiðslur Samherja hafa numið tæplega þremur milljörðum króna frá því að fyrirtækið hóf veiðar við Afríku en þar af runnu ellefu hundruð milljónir til Þorsteins Más og eiginkonu hans.
Þegar tekið er mið af arðgreiðslunni til hluthafa Samherja fyrir árið 2010, sem ekki kemur fram fyrr en í ársreikningi fyrir 2011, hækkar þessi arðgreiðsla upp í rúmlega 1500 milljónir króna.
Þetta er aðeins brot af greininni sem birtist í DV. Áskrifendur geta lesið hana alla á vefnum með því að smella á meira.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013