Ólafur Ragnar ætlaði að mynda utanþingsstjórn

Var farinn að velta fyrir sér nöfnum hugsanlegra ráðherra

Ólafur Ragnar Grímsson forseti leit á það sem möguleika að mynda utanþingsstjórn þegar búsáhaldabyltingin stóð sem hæst. Ólafur sagði í viðtali á Útvarpi Sögu í morgun að hann hafi íhugað það vandlega og verið kominn langt með undirbúning slíkrar stjórnar þegar ríkisstjórnin féll árið 2009.

Undirbúningur utanþingsstjórnarinnar var kominn svo langt að Ólafur Ragnar var farinn að velta fyrir sér nöfnum þeirra sem hugsanlega gætu setið í stjórninni. Hefði hann hrint þessum áformum sínum í framkvæmd hefði Ólafur orðið annar maðurinn til að mynda slíka stjórn. Aðeins Sveinn Björnsson, þá ríkisstjóri, hefur gert það, en hann skipaði utanþingsstjórn undir forsæti Björns Þórðarsonar árið 1942.

Ástæða þess að Ólafur Ragnar íhugaði utanþingsstjórn var að hann taldi óvíst að ríkisstjórnin sem þá var við völd, stjórn Geirs Hilmars Haarde, hafi ekki ráðið við það ástand sem þá var í landinu. Taldi hann að hætta væri á að landið yrði stjórnlaust.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.