Fékk launahækkun þrátt fyrir milljarðatap

Framkvæmdastjóri Stapa fékk rúmlega 200 þúsund krónum meira á mánuði árið 2011 en árið 2010

Laun Kára Arnórs Kárasonar, framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins Stapa, hækkuðu um 15,6 prósent árið 2011 frá árinu 2010. Árslaun Kára árið 2010 voru rétt rúmar fjórtán milljónir króna, eða 1.170 þúsund krónur á mánuði. Árslaun hans fyrir árið 2011 voru hins vegar mun hærri, eða 16,6 milljónir króna. Sú upphæð samsvarar 1.388 þúsund krónum á mánuði.

Launahækkun Kára er athyglisverð ef skoðað er tap sjóðsins á árunum frá 2008 til 2010. Í skýrslu úttektarnefndar lífeyrissjóða sem gefin var út í febrúar síðastliðnum kemur fram að tapið hafi í heildina numið tæpum 28 milljörðum króna.

Þetta kemur fram í frétt um málið í DV í dag. Fréttina má lesa í heild sinni hér að neðan.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.