Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
08:48 › 8. apríl 2012
Lögreglan á Ísafirði segir að nóttin hafi gengið snuðrulaust fyrir sig og enginn hafi þurft að gista fangaklefa. Eins og kunnugt er fer nú fram rokkhátíðin Aldrei fór ég suður og er því margfaldur íbúafjöldi í bænum. Á síðustu hátíð var mikið að gera hjá lögreglu Vestfjarða en þá komu meðal annars upp innbrot og íkveikjur, og þá voru rúður og hurðir meðal annars brotnar.
Skemmtanahald fór víðast hvar vel fram í nótt, og lögregla virðist almennt ánægð. Varðstjóri lögreglunnar á Akureyri sagði að þar á bæ hefði nóttin gengið ótrúlega vel „miðað við mannfjöldann í bænum.“ Þá munu engin stórmál hafa komið upp í nótt.

Hemmi Gunn fallinn frá