Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
10:19 › 7. apríl 2012
Mjög rólegt var á Ísafirði í nótt þrátt fyrir að þar fari fram ein af vinsælustu tónlistarhátíðum landsins. Margmenni er í Ísfjarðarbæ í tilefni af Aldrei fór ég suður sem nú fer fram í níunda sinn. Ekki eru staðfestar tölur um hversu margir eru á hátíðinni.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Vestfjörðum hefur skemmtanahald farið vel fram. Tvö minniháttar fíkniefnamál komu upp í nótt auk ölvunaraksturs. Lögreglumaður á vakt sem DV talaði við sagði það hafa verið nær einu málin sem komu upp.

Hemmi Gunn fallinn frá