Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
16:28 › 30. apríl 2012
Hér er á ferðinni tónlistarmyndband frá stuðningsmönnum forsetaframbjóðandans Ástþórs Magnússon. Þar hafa þeir íslenskað lag John Lennons Power to the People frá 1971. Í lagi stuðningsmanna Ástþórs er kallað eftir því að valdið færist til fólksins og að Ástþór muni brúa gjána á milli þings og þjóðar með þjóðaratkvæðagreiðslu.
Er Ástþór sagður glaður færa valdið til fólksins með því að virkja og styrkja lýðræðið. Þá segjast stuðningsmenn Ástþórs ekki þurfa á þægri strengjabrúðu að halda í embætti forseta Íslands og birtist í sömu andrá mynd af forsetaframbjóðandanum Þóru Arnórsdóttur heldur á Bessastaði mann með hreðjar, og birtist í sömu andrá mynd af Ástþóri.

Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013