Lífvænleg pláneta uppgötvuð utan okkar sólkerfis

Mögulega með vatn og svipaðan yfirborðshita og jörðin

Stjörnufræðingar hafa nú uppgötvað lífvænlega plánetu utan okkar sólkerfis. Plánetan er hvorki nógu langt frá sólinni til þess að frjósa né heldur of nálægt henni til þess að verða að eyðimörk.

Plánetan heitir Gliese 667Cc og snýst hún um rauða dvergstjörnu sem liggur u.þ.b. 22 ljósárum frá jörðinni. Samkvæmt frétt The Telegraph telja margir stjörnufræðingar plánetuna vera hið „heilaga gral“ uppgötvana á sviði stjörnufræðinnar þar sem vísindamenn voru enn að deila um tilvist slíkra plánetna fyrir einungis 20 árum síðan.

Steven Vogt, stjörnufræðingur hjá Kaliforníu-háskóla segir: „Þetta er hið heilaga gral rannsókna á plánetum utan okkar sólkerfis; það að finna plánetu sem snýst um stjörnu í réttri fjarlægð, þannig að hún er ekki of nálægt henni til að allt vatn eyðist og ekki of langt frá til að hún frjósi.“ Fleiri en 760 plánetur hafa verið uppgötvaðar utan okkar sólkerfis en aðeins fjórar þeirra eru taldar vera á slíku lífvænlegu sviði.

Gögn um Gliese 667Cc virðast benda til þess að plánetan sé fastmótuð og með u.þ.b. fjórum sinnum meiri massa en jörðin. Vísindamenn við Göttingen- og Kaliforníu-háskóla telja að mögulegt sé að finna vatn á plánetunni og að yfirborðshiti hennar sé líkur yfirborðshita jarðarinnar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.