Fasteignafélag IKEA í erfiðleikum

Mælt með 150 milljóna arði

Stjórn eignarhaldsfélagsins sem á og rekur IKEA á Íslandi mælir með því að greiddur verði út 150 milljóna króna arður til hluthafa húsgagnaverslunarinnar vegna rekstrarársins 2010. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins fyrir árið 2010. Ársreikningurinn nær yfir tímabilið september 2009 og til september 2010. Fyrirtækið skilaði 28 milljóna króna hagnaði á þessu tímabili.

Eigandi félagsins, sem heitir Miklatorg hf., er Eignarhaldsfélagið Miklatorg. Eigendur IKEA í gegnum umrædd félög eru bræðurnir Sigurður Gísli Pálmason og Jón Pálmason, synir Pálma í Hagkaupi, og Sigfús Ingimundarson, sem yfirleitt er kenndur við Heklu. Fjárfestingarfélög þeirra heita Dexter ehf. og Fari ehf. Þeir hafa unnið saman í fjárfestingum til margra ára, meðal annars í gegnum MP banka þar sem Sigurður Gísli og Sigfús voru hluthafar og stjórnarmenn.

Rekstrartekjur upp á nærri 5 milljarða

Rekstur IKEA á Íslandi glæddist á milli áranna 2009 og 2010. IKEA fór frá því að skila rúmlega 135 milljóna króna tapi árið 2009 yfir í að skila tæplega 28 milljóna hagnaði árið 2010. Þá nam hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBIDTA) tæpum 70 milljónum árið 2010 en rúmlega 25 milljónum króna árið 2009. Rekstrartekjur fyrirtækisins jukust sömuleiðis á milli ára, fóru úr 4,4 milljörðum króna árið 2009 upp í 4,8 milljarða árið 2010.

Þá hefur komið fram í fjölmiðlum, í máli Þórarins Ævarssonar, framkvæmdastjóra IKEA, að rekstrartekjur húsgagnaverslunarinnar hafi numið rúmum fimm milljörðum króna í fyrra. Ársreikningur IKEA fyrir það ár liggur hins vegar ekki fyrir. Hækkun rekstrartekna IKEA á Íslandi á milli áranna 2009 og 2010 er nokkurn veginn í samræmi við aukinn hagnað IKEA í öðrum löndum. Í frétt frá BBC frá því í janúar á þessu ári var greint frá því að hagnaður IKEA í Svíþjóð hefði aukist um 10 prósent á milli áranna 2010 og 2011. Rekstrartekjur IKEA á Íslandi halda því áfram að rísa á milli ára eftir því sem lengra líður frá hruninu árið 2008.

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.