Hvernig fannst þér dómurinn yfir Geir Haarde?
„Út af fyrir sig er hægt að taka undir með það að niðurstaða landsdóms er ákveðinn áfellisdómur yfir þeim vinnubrögðum sem viðgengst hafa í gegnum tíðina innan stjórnsýslunnar,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra aðspurð út í ummæli Geirs H. Haarde frá því fyrr í dag. Hún segir dóminn í dag því ekki eiga við um þau vinnubrögð sem stunduð séu í dag, þó að hún taki undir það með Geir að vinnubrögðin hafi verið slæleg áður.
Í yfirlýsingu Geirs stuttu eftir dómsuppkvaðningu Landsdóms kom fram í máli forsætisráðherrans fyrrverandi að með dómnum tæki hann á sig sök fyrir alla forsætisráðherra sem setið hefðu frá árinu 1918. „Það er með öðrum orðum verið að sakfella mig fyrir það sem allir aðrir hafa gert. Ég læt mig ekki muna um að taka það allt saman á mínar herðar,“ sagði Geir að dómnum loknum og vitnaði til þess að þau vinnubrögð sem að hans sögn hafa allt frá upphafi nútíma ráðherraskipan frá árinu 1918, eða þeirri ráðherraskipan sem til kom með fullveldi Íslands.
„Raunar hefur þessi gagnrýni á störf ráðherra komið fram í rannsóknarskýrslu Alþingis,“ segir Jóhanna sem telur vinnubrögðin þau sem Geir er dæmdur hafa breyst töluvert sökum tillagna rannsóknarnefndar Alþingis á orsökum og afleiðingum bankahrunsins, um það sem betur hefði mátt fara. „Við höfum einmitt undanfarin þrjú ár unnið að breytingum á þessum atriðum. Tekið er á þessu málum í nýjum lögum um Stjórnarráð Íslands. Með þeim er komið á meiri formfestu í stjórnsýslunni en áður var. Það var nauðsynlegt,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir aðspurð hvort unnið sé með sama hætti að boðun og skráningu funda ríkisstjórnarinnar og Geir H. Haarde var í dag dæmdur sekur fyrir.
Jóhanna segir sérstakar ráðherranefndir funda reglulega í kjölfar breytinga á vinnubrögðum. „Sérstaklega á það við um efnahagsmál. Fundir ráðherranefndar um þau mál eru nú haldnir einu sinni í viku. Að auki hefur fjöldi ráðherrafunda verið aukinn. Þar er allt kyrfilega bókað og allar fundargerðir ráðherranefnda eru lagðar fyrir ríkisstjórn,“ segir Jóhanna sem telur ekki líklegt að það verði jafn matskennt og undir þeim lögum sem áður giltu hvort forsætisráðherra uppfylli ákveði stjórnarskrár um ráðherrafundi. Geir H. Haarde var líkt og fram kom fyrr í dag sýknaður um fyrri lið ákærunnar á hendur honum. Það er þeim sem enn stóðu eftir að Landsdómur hafði áður vísað fyrstu tveimur liðum, fyrri ákæruliðar frá dómi. Geir var því sýknaður af ákærum um að hafa vanrækt að sjá til þess að störf samráðshóps stjórnvalda um fjármálstöðuleika skilaði tilætluðum árangri, vanrækslu á að hafa haft frumkvæði af virkum aðgerðum að hálfu ríkisvaldsins og sýknaður af því að hafa ekki fullvissað sig um að unnið væri með virkum hætti að flutningi Icesave-reikninganna yfir í breskt dótturfélag.
Geir var dæmdur sekur fyrir annan ákæruliðinn, það er að hafa ekki haldið ráðherrafundi eins og skipað er fyrir um í 17.g grein stjórnarskrárinnar. Í ákæru á hendur Geir kemur fram að með því þyki hann brotlegur við ákvæði laga um ráðherraábyrgð.

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi