Hundaníðingur fái aldrei að eiga dýr framar

Drekkti hundinum Kol - Hundsdrápið á Þingeyri fer fyrir dóm

Lögreglustjórinn á Vestfjörðum krefst þess að 27 ára karlmaður, Sigurður Daðason, sem viðurkennt hefur að hafa drekkt hundi með hrottafengnum hætti á Þingeyri verði dæmdur til refsingar og sviptur heimild til að hafa dýr í umsjá sinni. Þetta kemur fram í ákæru málsins sem DV hefur undir höndum en málið fer fyrir Héraðsdóm Vestfjarða í vikunni.

DV sagði fyrst frá og hefur fylgst náið með framvindu málsins síðan það kom upp í desember síðastliðnum. Hundsdrápið vakti hörð viðbrögð og mikinn óhug meðal dýravina enda aðferðin við að lóga hundinum sérlega ógeðfelld.

Samkvæmt ákæru hét hundurinn Kolur en hafði áður verið þekktur undir nafninu Diesel. Þar segir að á tímabilinu 5. -8. desember síðastliðinn hafi Sigurður bundið Kol á fram- og afturfótum og fest tvö bíldekk af gerðinni Federal Fermoza, sem voru á álfelgum, við hann. Því næst kastaði hann bíldekkjunum og Kol í sjóinn við vegbrú í botni Dýrafjarðar.

Hundshræið fannst síðan þann 8. desember í Þingeyrarhöfn. Þann 30. janúar greindi lögreglan á Vestfjörðum frá því að Sigurður hefði játað sök í málinu og það færi í ákærumeðferð. Ákæran verður þingfest í héraðsdómi á morgun, þriðjudag. Ekki náðist í Sigurð við vinnslu þessarar fréttar.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.