Kaldbakur ehf., fjárfestingarfélag útgerðarfélagsins Samherja, seldi 0,8 prósenta hlut í Kaupþingi árið 2008 fyrir 4,6 milljarða króna. DV hefur ekki heimildir fyrir því hvenær félagið seldi bréfin. Félagið átti 0,8 prósenta hlut í Kaupþingi í árslok 2007, eða um 6 milljón hluti, en átti ekki lengur þennan hlut í árslok 2008.
Samherji var í sjálfskuldaraábyrgðum vegna langtímaskulda Kaldbaks og námu þær rúmlega 5,2 milljörðum króna í árslok 2007, samkvæmt ársreikningi félagsins. Þetta lán hafði verið notað til að fjármagna hlutabréfin. „Móðurfélag félagsins, Samherji hf., er í sjálfsskuldarábyrgð vegna langtímaskulda félagsins,“ segir þar. Þar að auki átti Kaupþingi veð í hlutabréfum Samherja í Síldarvinnslunni út af hlutabréfaláninu.
Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira


Hemmi Gunn fallinn frá