Þóra búin að stofna kosningasjóð

Segist ekki fá upplýsingar um hverjir styrkja baráttuna

Stofnaður hefur verið kosningasjóður vegna framboðs Þóru Arnórsdóttur fjölmiðlakonu. Þetta segir á opinberri Facebook-síðu framboðsins. Þar segir Þóra að hvorki hún né Svavar muni fá upplýsingar um hverjir það eru sem styrkja framboðið heldur einungis hver staða sjóðsins er hverju sinni.

„Sem fyrr segir verður þetta allt rekið af mikilli hófsemd og ekkert tekið að láni, við ætlum bara að eyða því sem kemur inn og ekki krónu meir,“ segir í Facebook-færslunni frá Þóru. Þar minnir hún einnig á reglur varðandi söfnun sem þessa en þær kveða á um að enginn megi gefa meira en 400.000, tengdir aðilar ekki meira en 500.000.

Verði afgangur af því sem safnast í kosningasjóðinn segist Þóra ætla að gefa það til góðgerðar mála. „Ég hef það fyrir satt að það hafi gerst hjá Vigdísi Finnbogadóttur,“ segir Þóra.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.