Skoðanakannanir ráða ekki för

Aðalsamningamaður Íslands segir vaxandi andstöðu við aðild ekki trufla samninganefndina

Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands í aðildarviðræðum við Evrópusambandið, segir að samninganefndin láti vaxandi andstöðu við aðild að sambandinu ekki trufla sig. Samninganefndin haldi sínu striki þrátt fyrir að stuðningur við aðild mælist lítill.

„Þetta truflar ekki viðræðurnar. Staðreyndirnar tala sínu máli, enda eru það ekki skoðanakannanir sem ráða för í þessu, heldur það efnislega og faglega og hversu vel gengur að leysa úr þessu,“ segir Stefán Haukur í samtali við DV.

Ráðamenn í Brussel sem koma að aðildarviðræðunum hafa hins vegar lýst yfir áhyggjum sínum af stöðunni.

Stefán segir að nefndin láti það ekki trufla sig þó að ríkisstjórnarflokkarnir séu ósammála um hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. „Staðreyndirnar tala sínu máli. Aðalatriðið er að ríkisstjórnin fékk umboð frá Alþingi til að sækja um aðild og ráðast í þessar viðræður og það er stefna ríkisstjórnarinnar. Þetta er það sem við erum að vinna eftir og ESB er að sjálfsögðu ýmsu vant meðal aðildarríkja sinna. Það er iðurlega ágreiningur og menn þurfa að gera málamiðlanir til að koma málum áfram.“

Alls hafa 15 kaflar í samningaviðræðum Íslands við ESB verið opnaðir, en alls verða 33 kaflar opnaðir í viðræðunum. Stefán Haukur segist mjög ánægður með gang viðræðnanna.


Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.