„Þá verður auðvitað hægt að kaupa mjólk á hóflegu verði eða rúmlega lítraverði á bensíni, sem er auðvitað hlægilega lágt. Um að gera að dæla sem mest,“ segir í auglýsingu fyrir „pub quiz“ á vegum Stefnis ungra sjálfstæðismanna í Hafnarfirði. Stefnir er eins og önnur ungliðafélög Sjálfstæðisflokksins í hluti af Sambandi ungra Sjálfstæðismanna en samkvæmt lögum SUS hafa einstaklingar á aldrinum 15 til 35 ára rétt til aðildar.
Ungliðahreyfingar stjórnmálaflokka hafa gjarnan verið gagnrýndar fyrir að veita áfengi til meðlima sinna. Þá er ásakanir um að hreyfingarnar hafi það hlutverk að smala ungum kjósendum með gylliboðum, pizzum og áfengi marg endurteknar. DV athugaði málið og bar viðburðarauglýsingar ungliðahreyfinga undir formenn ungliðahreyfinga Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri græna.
Formaður SÁÁ segir beinar aðgerðar nauðsynlegar til að koma í veg fyrir unglingadrykkju.
Nánar er fjallað um ungliðahreyfingar stjórnmálaflokka og áfengisneyslu við atburði á þeirra vegum í DV í dag. Áskrifendur DV geta smellt á „meira“ til að sjá fréttina í heild.


Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Alþingiskosningar 2013