Eignarhaldsfélag í eigu Guðjóns Más Guðjónssonar, sem yfirleitt er kenndur við hugbúnaðarfyrirtækið OZ, skilur eftir sig tæplega 600 milljóna skuldir sem ekkert fæst upp í. Félagið heitir 7 jarðir ehf. og hélt utan um fasteign á Skálholtsstíg 7. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu. Guðjón segist halda fasteigninni þó að eignarhaldsfélagið sé farið í þrot. Arion banki var eini kröfuhafi eignarhaldsfélagsins.
Guðjón segir aðspurður að eftir efnahagshrunið 2008 hafi lán eignarhaldsfélagsins stökkbreyst og að hann hafi ekki getað staðið í skilum með afborganir af því. Orðið sem Guðjón notar til að lýsa láninu er að það hafi verið „ónýtt“. Hann segir að orðið hafi úr að Arion-banki fór fram að félagið yrði tekið til gjaldþrotaskipta vegna skulda þess.
Húsið á Skálholtsstíg er tæpir 500 fermetrar að stærð og er fasteignamat þess tæpar 80 milljónir. Guðjón hefur átt húsið í gegnum ýmis félög allt frá árinu 1998.
Í DV í dag segir Guðjón að hann hafi ekki fengið neina sérmeðferð í bankanum og að uppgjörið hafi verið heiðarlegt. „Það er enginn ósiðlegur gjörningur þarna sem ég er að reyna að fela.“ Nánar um málið í DV í dag.


Eurovison 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi
Harmleikur á Egilsstöðum
Alþingiskosningar 2013