Kakkalakkar sem gæludýr á Íslandi

Rauðar og gular þúsundfætlur, kakkalakkar og engisprettur keyptar sem gæludýr

„Fólk kaupir kakkalakka til að eiga fyrir gæludýr, en það eru nú ekki margir,“ segir Ingólfur Tjörvi Einarsson, eigandi gæludýraverslunarinnar Furðufugla og fylgisfiska, en þar er meðal annars hægt að kaupa kakkalakka, þúsundfætlur ættaðar frá Afríku og engisprettur ásamt fleiri framandi dýrum. Alls er Tjörvi með um 270 tegundir af dýrum og lífverum í búðinni. Kakkalakkinn kostar tæpar 1.300 krónur, en Tjörvi segir þrjá eða fjóra einstaklinga hafa keypt kakkalakka sér til ánægju og yndisauka.

Almennt ríkir bann við innflutningi skordýra til landsins en verslun Tjörva er með undanþágu til þess. Gísli Jónsson, dýralæknir hjá Matvælastofnun, sem annast leyfi til innflutnings segir að síðan heimilaður var innflutningur á froskdýrum hafi verið verið veittar undanþágur til innflutnings af slíku tagi, þar sem þess konar dýr þurfi lifandi fóður.

Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira

Meira »


Gleymt lykilorð?

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.