Hrannar B. Arnarson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, átti hlutabréf í Kaupþingi fyrir hrunið 2008 sem hann fjármagnaði með lántökum hjá Glitni.
Lánið hjá Glitni var með veði í húsinu hans. „Já, ég átti hlutabréf þar og á fleiri stöðum [...] Þetta var fjármagnað af Íslandsbanka með veði í húsinu mínu [...] Ég átti hlutabréf eins og mjög margir aðrir og tapaði talsvert á því.“
Hrannar var aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmálaráðherra í ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins, frá því í lok júní 2007 og fram að hruninu 2008
Missti bréfin í veðköllum
Hrannar missti bréfin í veðköllum fyrir hrunið 2008, eftir að hlutabréfaverð í bankanum hafði lækkað og bankinn kallaði eftir auknum tryggingum. „Ég var nú búinn að missa þetta allt þegar bankinn féll. Þegar hlutabréfin lækkuðu þurfti maður að selja bréf eða leggja fram betri tryggingar og þegar maður hafði ekki bolmagn í það voru bréfin seld og málin gerð upp.“
Skuldirnar standa hins vegar eftir og segist Hrannar enn vera að greiða af láninu. „Ég er ennþá að borga af þessu: Lánið situr eftir en hlutabréfin eru farin. Allt þetta hlutabréfadót mitt er löngu uppgert og frágengið og mín lán eru bara í skilum.“

Alþingiskosningar 2013
Blóðugt uppgjör í Seljahverfi