„Ætlun nefndarinnar er að ítreka að fólk gangi ekki í önnur störf og einbeiti sér að sínu starfssviði,“ segir Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í samtali við DV.is um drög að frumvarpi til laga um Ríkisútvarpið sem nefnd um endurskoðun laga stofnunnar hefur skilað af sér.
Í drögunum stendur orðrétt að útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins skuli ekki gegna öðrum störfum á vettvangi Ríkisútvarpsins. Páll Magnússon er útvarpsstjóri en hann er einnig fréttaþulur Sjónvarpsins.
Í samtali við vef Morgunblaðsins segir Páll að með þessu sé verið að fara krókaleið að augljósu marki. Segir hann ráðamenn eiga að segja það hreint út að þeir vilja ekki að hann lesi fréttir.
„Það má auðvitað draga þá ályktun líkt og hann gerir,“ segir Katrín við DV.is en ítrekar að ætlun nefndarinnar sé að ítreka að fólk gangi ekki í önnur störf og einbeiti sér að sínu starfssviði.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
