Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, barðist fyrir því árið 2009 að fjölga listamönnum sem þiggja starfslaun.
Alls ver íslenska ríkið rúmlega 466 milljónum króna í listamannalaun í ár til að greiða 217 einstaklingum mánaðarlegar greiðslur til mislangs tíma. Í ár eru launin rúmlega 291 þúsund krónur en samtals eru 1.600 mánaðarlaun til ráðstöfunar.
Þessi fjöldi mánaðarlauna hækkaði umtalsvert með lagabreytingum sem núverandi ríkisstjórn gerði á Alþingi í apríl 2009. Þá fjölgaði þessum heildarfjölda mánaðarlauna úr 1.200 í 1.600 en á sama tíma hafa mánaðarlaunin hækkað úr rúmlega 266 þúsund krónum í rúmlega 291 þúsund. Með fjölgun úthlutana og mánaðarlauna til ráðstöfunar þýðir það að útgjöld ríkisins hafa hækkað úr 319 milljónum á ári í rúmlega 466 milljónir á ári. Hækkun sem nemur rúmum 147 milljónum króna. Stærstan skerf af úthlutuðum mánaðarlaunum fá myndlistarmenn (435) og rithöfundar (555).
Katrín Jakobsdóttir lét hafa eftir sér í samtali við Morgunblaðið, nokkrum mánuðum eftir hrun, í mars 2009 að hún hefði sem menntamálaráðherra verið að leita leiða til að fjölga listamönnum á starfslaunum í „ljósi þess atvinnuástands sem ríkir og bakhjarlar listamanna halda að sér höndum í ljósi aðstæðna.“
Óhætt er að segja að afar skiptar skoðanir séu um listamannalaunin og verða þau árlega að miklu hitamáli í umræðunni. Það listafólk sem hlýtur þessi laun er án nokkurs vafa vel að því komið og vinna þess skilar sér oft á tíðum margfalt út í samfélagið. Hafa ber einnig í huga að greiddir eru skattar af listamannalaunum.
Einn þeirra sem sér þessa úthlutun í öðru samhengi er Vilhjálmur Birgisson, verkalýðsforingi af Akranesi. Hann hlekkjar á frétt um listamannalaunin á Facebook-síðu sinni og bendir á að nýlega hafi 30 manns verið sagt upp störfum og fjölmargir lækkað í launum á Sjúkrahúsi Akraness þegar deild sem veitir eldra fólki með heilabilun umönnun var lokað. „Skýring ráðamanna þessarar þjóðar var sú að ekki væri til fjármagn og þessi niðurskurður óhjákvæmilegur, ég segi bara núna, ja hérna.“
Þú getur sagt þína skoðun á listamannalaununum hér á DV.is með því að taka þátt í könnuninni hér fyrir neðan.
Sjá einnig:
Þessir fengu listamannalaun



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
