ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Jóhanna talaði ensku og sló í gegn

Vill halda áfram að vinna til hundrað ára aldurs
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:37 › 9. febrúar 2012
Jóhanna virðist vel geta bjargað sér á ensku eins og kom í ljós á blaðamannafundinum í dag.

Jóhanna virðist vel geta bjargað sér á ensku eins og kom í ljós á blaðamannafundinum í dag.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra vill vinna til hundrað ára aldurs. Þetta var meðal þess sem kom fram í máli hennar á blaðamannafundi við lok leiðtogafundar níu forsætisráðherra í Stokkhólmi í dag.

Mikil umræða hefur verið um þær hugmyndir sænsku ríkisstjórnarinnar að hækka eftirlaunaaldurinn í 75 ár í Svíþjóð og var Jóhanna spurð álits á málinu. Mikið hefur verið gert úr meintri vankunnáttu Jóhönnu í erlendum tungumálum hér á landi og mikið fjallað um það þegar hún ávarpaði erlenda fjölmiðla með aðstoð túlks eftir alþingiskosningarnar 2009. Forsætisráðherra lét þó engan bilbug á sér finna, svaraði spurningunni um eftirlaunaaldurinn á ensku og uppskar hlátrasköll frá viðstöddum.

Þar benti hún réttilega á að hún væri að verða sjötug og enn að vinna. Amma hennar hefði verið í pólitík til hundrað ára aldurs og það væri markmið hennar einnig. Þó Jóhanna fái kannski ekki tíu fyrir framburð og málfar þá kom hún því til skila sem þurfti.

Hægt er að sjá frammistöðu Jóhönnu á vef RÚV með því að smella hér

Hér má svo sjá frétt Stöðvar 2 um það þegar Jóhanna ávarpaði blaðamenn í Þjóðmenningarhúsinu með aðstoð túlks. Það féll ekki í kramið hjá andstæðingum hennar.




Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?