Bretinn, sem bjargað var af Vatnajökli í gær, hringdi í föður sinn til að biðja um aðstoð eftir að hann lenti í vandræðum á jöklinum.
Bretinn er 25 ára gamall og heitir Alex Hibbert. Hann var á ferð um jökulinn ásamt Finn McCann en tjaldið þeirra fauk um koll og tjaldsúlurnar brotnuðu.
Í samtali við breska dagblaðið The Daily Mail lýsir Hibbert tjaldi þeirra sem lítilli gröf.
Eftir að tjaldið eyðilagðist fóru þeir að óttast um öryggi sitt. Rafhlaðan á gervihnattasíma þeirra var nánast tóm og ákvað Hibbert því að hringja í föður sinn í Portsmouth í Englandi. Faðir hans hafði samband við bresk yfirvöld sem komu skilboðunum áleiðis.
„Þegar hann hringdi var hann afar rólegur. Hann hefur upplifað ýmislegt á ferðalögum sínum og er því afar reyndur. Ég sagði honum að við myndum kalla eftir hjálp,“ segir faðir hans í samtali við The Daily Mail.
Alex Hibbert sagði við Daily Mail að þeir hefðu ferðast um fimmtíu kílómetra um Vatnajökul og var vonsvikinn með að geta ekki klárað ferðina. Hann vonast til að geta farið aftur sem fyrst.



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
