Leið vel á Fjölnisvegi. Guðmundur í Brimi keypti glæsihýsi Hannesar Smárasonar. Þetta er í annað skiptið á áratug sem hann eignast húsið. (Samsett mynd)
Guðmundur Kristjánsson, útgerðarmaður í Brimi, hefur fest kaup á einu glæsilegasta og frægasta húsi Reykjavíkur við Fjölnisveg 11. Húsið varð frægt, og jafnvel alræmt, þegar það var í eigu fjárfestisins Hannesar Smárasonar í góðærinu en það var auglýst til sölu fyrir aðeins um þremur vikum síðan á 190 milljónir króna. Eftir um tvær vikur á markaði var greint frá því að glæsihýsið væri selt og nú er komið í ljós að kaupandinn er Guðmundur.
Hann segir í samtali við DV að hann hafi fengið húsið á sæmilegu verði. „Já, já, en það var ekki uppsett verð. Bara svona gangverð, miðað við það sem gengur og gerist nú til dags,“ segir útgerðarmaðurinn í samtali við DV.is.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Guðmundur eignast Fjölnisveg 11 því hann keypti húsið árið 2002 og bjó þar til ársins 2005. Hann hefur þó væntanlega þurft að greiða heldur meira fyrir húsið nú en þá. „Jú, en ég seldi það árið 2005,“ segir Guðmundur sem hefur líklega fengið gott verð fyrir það þá.
Aðspurður hvað komi til að hann hafi ákveðið að kaupa húsið aftur segir Guðmundur að honum hafi liðið vel í húsinu á sínum tíma og því ákveðið að slá til.
Eftir að Guðmundur seldi húsið við Fjölnisveg árið 2005 keypti hann hús við Nesveg 107, lét rífa það og byggði nýtt og glæsilegt sérhannað hús sem stendur við 1.200 fermetra sjávarlóð. En hvað verður um það?
„Ég bý bara á einum stað í einu og ég reikna með að búa á Fjölnisvegi.“
Allt til alls í lúxusvillunni
Fjölnisvegur 11 hefur verið mikið í kastljósi fjölmiðla undanfarin misseri. DV hefur talsvert fjallað um eignarhald hússins og þann lúxus sem þar er að finna. Þegar það var auglýst til sölu kom ýmislegt í ljós um hvað í því er að finna og er því ekki úr vegi að rifja upp hvað 435 fermetra hús sem metið var á 190 milljónir hefur að geyma.
Húsið, sem var endurnýjað mikið fyrir nokkrum árum, skiptist í raun í tvær íbúðir, en aðalíbúðin á efri hæðum er tæpir 340 fermetrar. Á efri hæðunum eru fimm svefnherbergi, þar af hjónaherbergi og innangengt í glæsilegt fataherbergi, þar sem virðist hafa verið hugsað fyrir öllum smáatriðum. Í fataherberginu er peningaskápur þar sem eflaust hafa verið geymd ýmis verðmæti í góðærinu, svo sem skartgripir eða reiðufé. Húsið er skráð átta herbergja en þrjár samliggjandi stofur má finna í aðalíbúðinni. Þar fyrir utan er einnig stór sjónvarpsstofa á efstu hæðinni með glæsilegu útsýni yfir Reykjavík.
Í kjallara Fjölnisvegar 11 er glæsileg spa-aðstaða með stórum heitum potti, gufubaði og sturtuaðstöðu. Þar er jafnframt líkamsræktarherbergi. Á stórri lóð hússins er einnig steyptur heitur pottur en tekið er fram að hann þarfnist lagfæringar.
Hér má lesa nánar um Fjölnisveg 11



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 


Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
