Ögmundur Jónasson. RÚV gróf upp umræðu á þingi frá 1996 til að hrekja ummæli ráðherrans í Kastljósi.
Ögmundur Jónasson greiddi ekki atkvæði gegn breytingum á Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins árið 1996 sem hann taldi þó „stórkostlega hættulega.“ Ögmundur sat hjá við atkvæðagreiðslu þessara breytingar sem, líkt og hann lýsti í Kastljósi á þriðjudag, snérust um að setja lífeyrissjóðinn í „braskstöðu“ og leita ávallt hámarks ávöxtunar með tilheyrandi áhættusækni.
Frá þessu var greint í kvöldfréttum RÚV. Ögmundur sat um árabil sem stjórnarmaður og stjórnarformaður Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins en sá sjóður kom afar illa út úr úttekt á lífeyrissjóðunum sem nýverið var birt og upplýst að tap hans nam rúmlega 100 milljörðum króna. Síðan þá hafa öll spjót staðið á Ögmundi sem mætti í mikið hitaviðtali í Kastljósi á þriðjudagskvöld.
Þar upplýsti hann að allt lífeyrissjóðskerfið byggði á braski og það mætti rekja til breytinga sem gerðar voru 1996 og í ársbyrjun 1997.
„Þá var ákveðið að sá sjóður gagnstætt því sem áður hafði verið í opinbera kerfinu, væri sjálfstæður sjóður á markaði sem yrði gert lögum samkvæmt að leita alltaf að hámarks ávöxtun. Þetta var bundið í lög. Það var einn maður á Alþingi sem andmælti þessu og hann situr hér,“ sagði Ögmundur í Kastljósi á þriðjudag og benti á sjálfan sig.
„Ég gerði grein fyrir atkvæði mínu og sagði þetta stórkostlega hættulegt að setja lífeyrissjóðina í þessa braskstöðu að leita ávallt hámarks ávöxtunar,“ bætti hann við.
Í kvöldfréttum RÚV kom hins vegar fram að Ögmundur hafi setið hjá við atkvæðagreiðslu um greinina sem breytti þessu. 51 þingmaður greiddi hins vegar atkvæði með frumvarpinu í heild sinni. Einn sagði nei. Það var ekki Ögmundur, heldur Jón Baldvin Hannibalsson. Ögmundur sagði já.
Sjá einnig:
„Lífeyrissjóðakerfið byggir á braski“
Ögmundur gagnrýndi bankana en keypti samt í þeim



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
