„Pólitísk siðbót hefur orðið í Kópavogi,“ skrifar Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna á bloggi sínu á Smugunni í kvöld. Þar skýtur Björn Valur föstum skotum að oddvitum Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks í bænum, þeim Gunnari Birgissyni og Ómari Stefánssyni, sem hann segir hafa verið færða til valda að nýju af þeim sömu og vildu losna við þá.
Björn er ekki í nokkrum vafa um að þeir muni ná vel saman þeir Gunnar og Ómar. „Það þarf allavega ekki að óttast að þeir láti almennar leikreglur stöðva sig enda eiga reglur ekki alltaf við þegar um slíka höfðingja er að ræða.“
„Pólitíska siðbótin í þessu ágæta sveitarfélagi virðist því annarsvegar felast í því að gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd og hinsvegar að stutt fjarvera framsóknar- og sjálfstæðisflokks úr meirihlutanum var aðeins minniháttar frávik frá þeirri meginreglu að þessir tveir flokkar stjórni því sem þeir vilja. Things are getting back to normal í Kópavogi.“



















Annþór Karlsson hefur verið í hávegum inni á Litla-Hrauni. Hann var í sérstakri náð fangelsisstjórans í fyrri vist í fangelsinu og var haldið á lofti sem fyrirmyndarfanga. 

Husky beit smáhund næstum til ólífis í Grafarvogi
Of mikið gert úr lokun bankaútibúa?
„Miklu miklu alvarlegra brot en sérstakur lætur í veðri vaka“
Ólafur Ragnar og Þóra hnífjöfn
Sakborningur í Straumsvíkurmálinu í skýjunum eftir dóminn
