ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Gat ekki hróflað við Davíð

Geir segist ákærður fyrir verkleysi annarra ráðherra
Atli Þór Fanndal atli@dv.is
13:30 › 9. febrúar 2012
Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra ásamt Davíð Oddson ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi Seðlabankastjóra.

Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra ásamt Davíð Oddson ritstjóra Morgunblaðsins og fyrrverandi Seðlabankastjóra.

„Þó gæti komið til mála að leggja ríkari refsiábyrgð á forsætisráðherra sem hefur vissa eftirlitsskyldu gagnvart samráðherrum sínum. Hér hefur þó ekki verið horfið að því ráði,“ segir í greinargerð frumvarps að lögum um ráðherraábyrgð frá árinu 1963. Þetta hyggst Andri Árnason, verjandi Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, nýta við vörn hans. Í greinargerð verjanda segir að þótt forsætisráðherra sé sá ráðherra sem fer fyrir ríkisstjórn á hverjum tíma sé ríkisstjórnin Íslands ekki fjölskipað stjórnvald. „Heldur vettvangur fyrir pólitískt samráð og samhæfingu starfandi ráðherra.“

Bent er á að ráðherrar eru æðstu embættismenn stjórnsýslunnar hver á sínu sviði og bera ábyrgð á sínum málahóp óháð öðrum ráðherrum. Þessu til stuðnings er vitnað til fjórtándu greinar stjórnarskránnaren þar segir að ráðherrar beri ábyrgð á stjórnarframkvæmdum öllum.

Davíð undanskilinn eftirliti
Andri bendir á að þótt mál er vörðuðu hagstjórn almennt, Seðlabanka Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, hafi samkvæmt reglugerð um Stjórnarráð Íslands heyrt undir forsætisráðherra sé Seðlabankinn samkvæmt lögum sjálfstæð stofnun. Helsta verkefni Seðlabankans hafi verið að stuðla að stöðugu verðlagi og sinna viðfangsefnum líkt og að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi.
Vörn Geirs mun benda á að þar sem kveðið sé á um sjáflstæðis Seðlabankans sé hann um leið undanskilinn yfirstjórnunar- og eftirlitsheimildum forsætisráðherra. Það þýði jafnframt að gjörðir eða vangjörðir bankans falli ekki undir ráðherraábyrgð forsætisráðherra.

Nánar er fjallað um málið í DV í dag. Áskrifendur að DV.is geta lesið alla fréttina ef þeir ýta á meira

Meira »

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?