ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.4° 9m/s S

Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi

10 ára stelpa geymd í kjallaraprísund eldri hjóna sem misnotuðu hana hrottalega
Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:14 › 9. febrúar 2012
Ashar-hjónin hafa verið dregin fyrir dóm fyrir hrottalega glæpi.

Ashar-hjónin hafa verið dregin fyrir dóm fyrir hrottalega glæpi. Mynd: Skjáskot af vef Daily Mail

Tíu ára munaðarlaus, daufdumb telpa frá Pakistan var flutt til Bretlands þar sem henni var ítrekað nauðgað og haldið í kjallaraprísund í áratug af eldri hjónum. Þetta kom fram í réttarhöldum yfir Ilyas Ashar og eiginkonu hans Tallat í Crown Court í Manchester í dag.

Í kjallaranum mátti stúlkan litla sofa á steypugólfi og vinna kauplaust myrkranna á milli. Það voru Ashar-hjónin sem fluttu hana með sér til Bretlands í júní árið 2000 og var henni veitt landsvistarleyfi á þeim grundvelli að hún væri að fara að vinna við húshjálparstörf. Saksóknari málsins hafði það einmitt á orði það væri afar dularfullt hvernig svo ungu barni var hleypt inn í landið til að vinna og gagnrýndi hann landamæraeftirlitið harðlega í máli sínu. Sú stofnun yrði að svara til saka vegna þessa.

Ashar-hjónin þræluðu stúlkunni út og mátti hún að auki sæta hrottafenginni kynferðislegri misnotkun þann áratug sem henni var haldið fanginni hjá hjónunum.

„Henni var refsað með að vera kastað niður í kjallaraholuna og læst inni þar sem hún var látin þjást, grátandi klukkustundum saman,“ sagði saksóknari málsins meðan kviðdómendur hlustuðu með tárin í augunum.

Á tíma sínum í prísund Ashar-hjónanna fékk hún aldrei að eiga samskipti við önnur börn. Hún gekk aldrei í skóla, hún kann hvorki að lesa og það eina sem hún kunni að skrifa var nafnið sitt sem Ashar-hjónin notuðu til að svíkja út bætur.

Hjónin eru ákærð fyrir mansal, frelsissviptingu, kynferðisbrot, ofbeldi og bótasvik. Þau neita sök.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?